21.12.2009 | 17:08
ÞAKKARGJÖRÐ Á JÓLAFÖSTUNNI !
Þegar jólahátíðin nálgast er rétt að þakka þeim sem hafa hjálpað okkur á liðnu ári. Hér eru mín þakkarorð: 1. Ég þakka öllu fötluðu fólki fyrir þessu frábæru bílastæði sem ég hef notað óspart
2. Ég þakka Tiger Woods fyrir að sýna mér, blákalt, að maskínugolfari getur verið mennskur
3. Ég þakka Útrásarvíkingunum fyrir að gefa mér allar þessar skuldir
4. Ég þakka Vinstri stjórninni fyrir þessa nýju skatta sem ég á að borga á næstu árum
5. Ég þakka Bretum og Hollendingum fyrir þessa einstöku velvild sem þeir hafa sýnt mér á árinu.
6. Ég þakka Svandísi Svavarsdóttir fyrir að stöðva allar framkvæmdir.
7. Ég þakka Jóhönnu og Steingrími fyrir að gera ekki neitt.
8. Ég þakka Sigmundi Erni og Ögmundi fyrir að skála með mér.
9. Ég þakka Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir þessa frábæru skuldasúpu sem þeir gáfu mér.
10. Ég þakka Búsáhaldabyltingunni fyrir að koma fyrri stjórn frá völdum, en bið þá vinsamlegast að endurtaka leikinn, þannig að ég geti virkilega þakkað þeim fyrir næsta stórverk.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- VONANDI FÁ NORÐMENN EKKI ANNAN SKELL Í ENSKRI TUNGU VEGNA BRE...
- ÞEGAR KNATTSPYRNULIÐ TAPAR ! ÞEGAR ÍSLENSKT EFNAHAGSLÍF HRYNUR !
- ÓPÓLITÍSK FORSETAKOSNING Á ÍSLANDI ER EKKI MÖGULEG !
- INGA LIND KARLSDÓTTIR, EKKI AÐEINS FALLEG HELDUR EINNIG GÁFUÐ !
- STJÓRNLAGAÞINGIÐ ER EITT ALLSHERJAR KLÚÐUR ! JÓHANNA VERÐUR A...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.